Sjólyst opnuð aftur eftir endurbætur
Sjólyst opnuð aftur eftir endurbætur
28. maí 2021
Kæru félagar í Hollvinafélagi Unu Guðmundsdóttur í Sjólyst og aðrir velunnarar. Þann 30.maí n.k kl 14:00 verður Sjólyst aftur opnuð eftir gagngerar endurbætur. Hollvinafélag Unu vill bjóða alla velkomna til að gleðjast með þeim.
Dagskrá:
- Ávörp
- Blessun prests
- Tónlistaratriði frá Tónlistarskólanum í Garði
- Afhending verðlauna í ljóðasamkeppninni Dagstjörnunni
Veitingar verða í boði bæjarins og öllum velkomið að koma inn og skoða húsið.
Bestu kveðjur, Stjórn Hollvinafélags Unu Guðmundsdóttur í Sjólyst.