Fara í efni

Samningur um vátryggingar

Samningur um vátryggingar

Að undangengnu útboði á tryggingum Suðurnesjabæjar hefur verið gengið frá samningi um allar tryggingar sveitarfélagsins við Vátryggingafélag Íslands (VÍS).

Suðurnesjabær hefur átt gott samstarf við VÍS um tryggingamálin undanfarin ár og eftir útboð á tryggingum mun samstarfið halda áfram næstu árin.

Suðurnesjabær fagnar áframhaldandi samstarfi við VÍS og var samningur milli aðila undirritaður í síðustu viku.  Um leið þakkar Suðurnesjabær öðrum tryggingafélögum fyrir þátttöku í útboði trygginganna.

Meðfylgjandi mynd var tekin af Magnúsi Stefánssyni bæjarstjóra og Magnúsi Geir Jónssyni hjá VÍS þegar samningur var undirritaður.