Fara í efni

Roðagyllum heiminn

Roðagyllum heiminn

Í dag, 25. nóvember, hófst 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi en 25. nóvember er einmitt dagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Átakinu lýkur á mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna, 10. desember.

10. desember er einnig alþjóðlegur dagur Soroptimista. Við í Suðurnesjabæ, líkt og á síðasta ári,  tókum áskorun frá Soroptimistaklúbbi Keflavíkur og leggjum okkar krafta fram við að roðagylla heiminn og taka þátt í þessu mikilvæga átaki.

Í ár lýsum við upp Álög í Sandgerði og Ráðhúsið í Garði í appelsínugulum lit og eru aðrir hvattir til þess að gera slíkt hið sama og taka þannig þátt í átaki gegn ofbeldi.

 

#Roðagyllumheiminn #Orangetheworld