Fara í efni

Öruggari Suðurnes

Öruggari Suðurnes

Fyrsti samráðsfundur um svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurnesjum var haldinn í í Duus Safnahúsi í Reykjanesbæ í dag. Það voru Lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Suðurnesjabær, Sveitarfélagið Vogar, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilsugæslan Höfða, Keilir, Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Sýslumaðurinn á Suðurnesjum  sem stóðu að fundinum og undirrituðu í lok hans samstarfsyfirlýsingu um verkefnið Öruggari Suðurnes sem felst í því að hefja og formfesta svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurnesjum

Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum setti fundinn og bauð fólk velkomið. Í framhaldinu ræddi Sigþrúður Guðmundsdóttir verkefnisstjóri verkefnisins um tölfræði um ofbeldi á Suðurnesjum og upplifun íbúanna af öryggi og Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir verkefnisstjóri fjölmenningar hjá Reykjanesbæ um sérstöðu Suðurnesja þegar kemur að fjölmenningarlegri íbúasamsetningu svæðisins. Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum hélt erindi um sérstöðu svæðisins frá sjónarhorni lögreglu. Í lokin fengu fundargestir að heyra stuttar hugleiðingar fólk um ofbeldi og ofbeldisvarnir en undir þeim lið töluðu  Hilmar Jón Stefánsson, félagsráðgjafi hjá Félagsþjónustu Suðurnesjabæjar og Voga, Sonný Norðfjörð Gunnarsdóttir og Betsý Árna Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingar á HSS, starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar Fjörheima, þau Gunnhildur Gunnarsdóttir, Thelma Hrund Ólafsdóttir og Ólafur Bergur Ólafsson og frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja þau Rannveig Sigríður Ragnarsdóttir, félagsráðgjafi og Leó Máni Quyen Nguvén formaður nemendafélags FS og Valur Axel Axelsson markaðsstjóri nemendafélagsins.

Margt bara á góma í erindunum en mikill samhljómur var varðandi mikilvægi þess að beina afbrotavörnum að börnum og ungu fólki og til þess að virkja foreldra í þeirri vinnu. Svæðsbundnar áskoranir og tækifæri voru rædd, meðal annars alþjóðaflugvöllur í túnjaðrinum, hátt hlutfalli fólks af erlendum uppruna og sterk hefð fyrir samvinnu milli kerfa. Fundargestir lýstu miklum áhuga fyrir enn þéttara samstarfi og í þeim anda var gleði við undirritun samstarfsyfirlýsingarinnar en með henni skuldbinda samstarfsaðilar sig til að vinna saman gegn ofbeldi og öðrum afbrogum með sameiginlegum markmiðum og aðgerðum.