Fara í efni

Umsóknarfrestur fyrir umsóknir í Menningarsjóð Suðurnesjabæjar framlengdur til 17. febrúar

Umsóknarfrestur fyrir umsóknir í Menningarsjóð Suðurnesjabæjar framlengdur til 17. febrúar

Búið er að opna fyrir umsóknir í Menningarsjóð Suðurnesjabæjar. Umsóknarfrestur vegna úthlutana ársins 2023 er til og með 17. febrúar 2023.  

Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér vel reglur sjóðsins og fylla út meðfylgjandi eyðublað þegar sótt erum í Menningarsjóðinn. Ferða-, safna- og menningarráð mun fara yfir umsóknir sem berast og úthluta styrkjum eftir mat á umsóknum.

Þá er vert að minna á 2. gr. í reglum um sjóðinn en þar segir m.a.:

Tilgangur sjóðsins er að styðja við menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ sem og styrkja einstaklinga, félagasamtök, hópa og stofnanir til lista- og menningarsköpunar í sveitarfélaginu. Til að hljóta styrk úr sjóðnum verða umsækjendur, s.s. listamenn, félagasamtök, hópar, stofnanir eða menningarviðburðir að tengjast Suðurnesjabæ á einhvern hátt. Þá þurfa þeir sem eru í forsvari fyrir umsókn að vera með fasta búsetu í Suðurnesjabæ og viðburðir, ef svo ber við, sem sótt er um fyrir að fara fram í Suðurnesjabæ.

Ferða-, safna- og menningarráð Suðurnesjabæjar hvetur áhugasama einstaklinga til þess að kynna sér sjóðinn og taka þátt í að byggja upp áframhaldandi menningarstarfsemi í Suðurnesjabæ.

Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fór fram í maí 2022.