Fara í efni

Nú þegar heitt vatn er farið að streyma til húsa á svæðinu er að ýmsu að huga.

Nú þegar heitt vatn er farið að streyma til húsa á svæðinu er að ýmsu að huga.

Gott er að hafa hitastilla lágt stillta og hækka ekki hitann fyrr en ofnar eða gólfhitakerfi byrja að hitna, og hækki síðan hitastilla í rólegheitunum í nokkrum þrepum.

Miðstöðvarkerfi fasteigna geta hafa orðið fyrir frostskemmdum í heitavatnsleysinu. Mikilvægt er að fylgjast vel með inntaksrými og öðrum lögnum, nú þegar heitu vatni er hleypt á að nýju.

Ef heitt vatn skilar sér í vaskinn er komið heitt vatn inn á kerfið, þá er gott að yfirfara hvort leki kunni að vera við inntaksrými eða í grind.

Verði íbúar varir við leka, eða vita nú þegar af frostskemmdum í lögnum, er mikilvægt að loka fyrir aðalinntakið við hitaveitugrinda, (sjá meðfylgjandi mynd) og tilkynna til þjónustuvers HS Veitna í síma 422-5200 eða á netfangið hsveitur@hsveitur.is.

Píparasveit Almannavarna og starfsfólk HS Veitna munu aðstoða viðskiptavini eftir bestu getu í dag og næstu daga. HS Veitur bera ábyrgð á lögnum að mæli og munu sjá um viðgerð á þeim, en lagnir fyrir innan mæli eru eign og ábyrgð húseigenda.

Við biðlum við til íbúa sem komnir eru með heitt vatn að fara sparlega með það á meðan verið er að byggja upp þrýsting á kerfinu, þannig að öll svæði fái að njóta heita vatnsins sem fyrst.
Það er eðlilegt að það taki tíma fyrir húsin að hitna og gott að leyfa því að gerast í rólegheitunum.