Fara í efni

Malbikunarframkvæmdir við Garðbraut

Malbikunarframkvæmdir við Garðbraut

Uppfært 13. ágúst.

Garðbrautin verður malbikuð í austurátt í dag miðvikudag. Ökumenn eru vinsamlegast beðnir um að takmarka umferð um Garðbrautina á meðan framkvæmdum stendur.

Uppfærð frétt!

Hætt hefur verið við malbikun á Garðbraut í dag þriðjudag vegna veðurs. Verkið verður fært til miðvikudags ef veður leyfir.

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:

Þriðjudaginn 12. ágúst er stefnt á að malbika Garðbraut í austurátt. Kaflinn er um 1.400 m að lengd og verður honum lokað í austurátt á meðan framkvæmdum stendur.

Hámarkshraði verður lækkaður og viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. lokunarplani sem sjá má á myndum.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl.09:00 til kl. 18:00 þriðjudaginn 12. ágúst.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Ábyrgðarmaður veghaldara er Ólafur 845-0045 og ábyrgðarmaður verktaka er Halldór 660-1916.