Laus störf í Gerðaskóla
Laus störf í Gerðaskóla
21. desember 2020
Gerðaskóli auglýsir eftir starfi þroskaþjálfa eða sérkennara.
Leitað er að þroskaþjálfa/sérkennara sem er metnaðarfullur, góður í mannlegum samskiptum, er sveigjanlegur og tilbúinn að leita nýrra leiða í skólastarfi.
Umsóknarfrestur er til 5.janúar og skulu umsóknir berast á netfangið eva@gerdaskoli.is
Nánari upplýsingar veitir Eva Björk Sveinsdóttir skólastjóri í síma 425 3050
Í Gerðaskóla eru rúmlega 250 nemendur. Við skólann starfa áhugasamir og metnaðarfullir starfsmenn.
Gildi skólans eru virðing, ábyrgð, árangur, ánægja.
Í Gerðaskóla leggjum við áherslu á að skapa námsumhverfi þar sem allir eru virkir, öllum líður vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.