Fara í efni

Jólaljósin verða tendruð í Suðurnesjabæ á Fullveldisdaginn

Jólaljósin verða tendruð í Suðurnesjabæ á Fullveldisdaginn
Jólaljósin verða tendruð í Suðurnesjabæ á Fullveldisdaginn þann 1. desember líkt og síðustu ár. Dagskrá verður í báðum byggðakjörnum, Garði og Sandgerði þar sem boðið verður uppá skemmtidagskrá í kjölfar þess að yngstu nemendur grunnskólanna ásamt bæjarstjóra kveikja jólaljós á jólatrjám.
 

Dagskrá:

17.00 kveikt á jólatrénu við Ráðhúsið í Garði.

  • Tónlistaratriði frá tónlistarskólanum í Garði
  • Jólasveinar verða á staðnum, heitt súkkulaði og piparkökur.
  • Glaðningur verður fyrir yngstu börnin.

18.00 kveikt á jólatrénu við Sandgerðisskóla.

  • Tónlistaratriði frá tónlistarskólanum í Sandgerði
  • Jólasveinar verða á staðnum, heitt súkkulaði og piparkökur.
  • Glaðningur verður fyrir yngstu börnin.