Jóla- og ljósahús Suðurnesjabæjar 2023
Íbúar hafa verið duglegir við að skreyta hjá sér og lífga upp á skammdegið með ljósum.
Val á ljósa- og jólahúsum var í höndum ferða-, safna- og menningarráðs líkt og undanfarin ár og fá eigendur og íbúar húsanna gjafabréf frá HS veitum við tilefnið sem nýtist í niðurgreiðslu á rafmagni. HS veitum eru færðar þakkir fyrir þeirra stuðning við verkefnið.
Ljósahús Suðurnesjabæjar árið 2023 er Holtsgata 39 í Sandgerði og Jólahús Suðurnesjabæjar árið 2023 er Einholt 7 í Garði
Sérstakar viðurkenningar fengu íbúar við Lækjamót 18 í Sandgerði og Gauksstaðaveg 2 í Garði.
Íbúum er óskað til hamingju með viðurkenningarnar.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við tilefnið en sjón er sögu ríkari og eru íbúar hvattir til þess að fara í gönguferðir og skoða jólaljósin.