Fara í efni

Jóla- og ljósahús Suðurnesjabæjar 2022

Jóla- og ljósahús Suðurnesjabæjar 2022

Viðurkenningar fyrir fallegar jólaskreytingar í Suðurnesjabæ voru afhentar í gær 22. desember þegar fulltrúar ferða-, safna- og menningarráðs, Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir og Hlynur Þór Valsson, heimsóttu íbúa þeirra húsa sem hlutu viðurkenningar í ár.

Þeir sem hafa farið um götur Suðurnesjabæjar sjá strax að íbúar hafa verið duglegir við að skreyta hjá sér og lífga upp á skammdegið með fallegum ljósum. Val á ljósa- og jólahúsum var í höndum ferða-, safna- og menningarráðs líkt og undanfarin ár og fá eigendur og íbúar húsanna gjafabréf frá HS veitum við tilefnið sem nýtist í niðurgreiðslu á rafmagni. HS veitum eru færðar þakkir fyrir þeirra stuðning við verkefnið.

Ljósahús Suðurnesjabæjar árið 2022 er Hólagata 13 í Sandgerði og jólahús Suðurnesjabæjar árið 2022 er Heiðarbraut 8 í Garði.

Sérstakar viðurkenningar fengu íbúar við Dynhól 1 í Sandgerði og Stafnesveg 32 í Sandgerði.

Íbúum er óskað til hamingju með viðurkenningarnar.

Meðfylgjandi myndir voru teknar við tilefnið en sjón er sögu ríkari og eru íbúar hvattir til þess að fara í gönguferðir í því fallega veðri sem nú er og skoða jólaljósin.