Innritun nemenda í 1.bekk skólaárið 2025-2026 er hafin
Innritun nemenda í 1.bekk skólaárið 2025-2026 er hafin
09. apríl 2025
Innritun er hafin fyrir börn sem eiga að fara í 1. bekk Sandgerðisskóla og Gerðaskóla skólaárið 2025 - 2026. Gert er ráð fyrir því að foreldrar séu búnir að skrá börn sín fyrir 16. maí næstkomandi.
Búið er að forskrá nemendur samkvæmt íbúaskrá Suðurnesjabæjar. Vinsamlegast fyllið út og ljúkið við umsókn um skólavist með því að smella á hlekki hér fyrir neðan.
Ef barn með lögheimili í sveitarfélaginu hefur verið eða mun innritast í annan skóla en heimaskóla, biðjum við ykkur að láta ritara í heimaskóla vita. Athugið að sækja þarf sérstaklega um námsvist utan lögheimilissveitarfélags ef það á við. Hægt er að gera það hér.
Umsóknarform fyrir Sandgerðisskóla.