Fara í efni

Hjá Höllu semur um aðstöðu í Suðurnesjabæ

Hjá Höllu semur um aðstöðu í Suðurnesjabæ

Vegna þeirra aðstæðna sem hafa skapast í Grindavík í kjölfar náttúruhamfara undanfarið eru mörg atvinnufyrirtæki í Grindavík að leita leiða til að halda starfsemi sinni gangandi annars staðar. Eitt af þeim fyrirtækjum er veitingafyrirtækið Hjá Höllu, en Halla hefur undanfarið verið að leita að heppilegri aðstöðu fyrir sína starfsemi. Svo vel vill til að í Vörðunni í Sandgerði er tilbúið framleiðslueldhús, sem hefur verið lítið notað mörg undanfarin ár. Suðurnesjabær hafði samband við Höllu fyrir nokkru síðan og benti henni á þann möguleika að nýta eldhúsið fyrir sína starfsemi.

Nú hefur verið gengið frá samningi við fyrirtækið um leigu á eldhúsinu og mun starfsemi Hjá Höllu því fara fram þar. Ásamt vinnslueldhúsi mun Halla verða með afgreiðslu þar sem viðskiptavinir geta sótt sínar pantanir. Jafnframt mun Halla framleiða vörur fyrir fyrirtækja-og veisluþjónustu sína, ásamt vörum fyrir veitingastaðinn Hjá Höllu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli.

 

Suðurnesjabær býður Hjá Höllu velkomna til Sandgerðis og væntum góðs af samstarfi við hana.