Fara í efni

Framboðslistar í sveitarstjórnarkosningum

Framboðslistar í sveitarstjórnarkosningum

Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar hefur farið yfir framlagða framboðslista vegna komandi sveitarstjórnarkosninga í samræmi við ákvæði laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 112/2021.

Allir framboðslistar sem voru mótteknir uppfylla skilyrði laga og teljast því gildir í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Eftirtaldir framboðslistar hafa verið samþykktir:

  • B listi – Framsókn og óháðir
  • D listi – D listinn og óháðir
  • M listi – Miðflokkurinn
  • S listi – Samfylkingin og óháðir

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16.maí 2026. Nánari upplýsingar um kjörskrá og kjördeildir verða birtar þegar nær dregur.

Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar