Fræðslufundur Suðurnes - Sjónrænt skipulag
Fræðslufundur Suðurnes - Sjónrænt skipulag
08. september 2023
Sjónrænt skipulag
Er erfitt að fá barnið til að fylgja fyrirmælum og skapa ramma og rútínu? Börn með ADHD eiga iðulega erfitt með að skilja og fylgja eftir munnlegum fyrirmælum en hafa þess í stað sjónræna styrkleika. Þegar þjálfa á daglegar venjur og fá barnið til að fylgja þeim getur sjónrænt skipulag komið að góðum notum.
Katrín Ruth Þorgeirsdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi og hegðunarráðgjafi fer yfir nokkrar aðferðir og leiðir sem hægt er að nota til að kenna, þjálfa og styðja við daglegar rútínur.
Fundurinn verður haldinn þann 13. september í Akurskóla og hefst klukkan 20:00.
Hér er tengill til að skrá sig í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd
Verið velkomin á fræðslufundinn!
Facebook viðburðinn má finna hér.