Fara í efni

Eldgos við Fagradalsfjall

Eldgos við Fagradalsfjall

Eins og greint var frá í gærkvöldi, 19. mars, hófst gos við Fagradalsfjall. Samkvæmt upplýsingum sem m.a. má finna á vef Veðurstofunnar er umfang gossins lítið og hefur virkni heldur minnkað frá því í gærkvöldi. Lítið er um kvikustróka upp úr sprungunni og þekur hraunflæðið svæði sem er í mesta lagi um 100 metra breitt, en unnið er að kortlagningu svæðisins. Eins og staðan er núna er gosið afmarkað við mjög lítið svæði ofan í dalverpi og er afar ólíklegt að hraunflæði komi til með að valda tjóni. Engin gosaska mælist frá eldstöðvunum og miðað við fyrsta mat er ekki mikil hætta á að gasmengun komi til með að valda miklum óþægindum nema næst gosstöðvunum. Við hvetjum fólk þó til að fylgjast með gangi mála og bendum á að hægt er að finna upplýsingar um loftmæla á vef Umhverfisstofnunar.

Vindaáttinn eins og hún er núna er okkur íbúum í Suðurnesjabæ hliðholl en áfram verður fylgst með þróun mála. Þá er mikilvægt að taka það fram að svæðið næst gosstöðvunum er hættusvæði og alls ekki ráðlegt að vera á ferðinni þar. Í landslaginu er mikið um lægðir þar sem gas gæti leynst og verið hættulegt fólki.

Myndin með fréttinni er frá ferð Landhelgisgæslunnar í morgun.