Fara í efni

Deildarstjóri fræðsluþjónustu Suðurnesjabæjar

Deildarstjóri fræðsluþjónustu Suðurnesjabæjar

Fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar óskar eftir öflugum og skapandi leiðtoga í starf deildarstjóra fræðsluþjónustu. Suðurnesjabær er næst stærsta sveitafélagið á Suðurnesjum með um 3.800 íbúa og um 280 starfsmenn. Í sveitarfélaginu eru tveir leikskólar, tveir grunnskólar og tónlistarskólar. Fjölskyldusvið er samþætt þjónustueining og til þess heyrir  félags-, frístunda- og fræðsluþjónusta. Þá sinnir fjölskyldusvið einnig félags- og fræðslumálum fyrir sveitarfélagið Voga á grundvelli samnings, þar sem er einn leikskóli og einn grunnskóli.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi fræðsludeildar.
  • Eftirfylgni með lögum og reglugerðum um leik-, grunn- og tónlistaskóla.
  • Eftirlit og umsjón með aðbúnaði, skipulagi og árangri skólastarfs í samvinnu við skólastjórnendur.
  • Stuðningur og ráðgjöf við aðila skólasamfélagsins.
  • Tengiliður skóla m.a. við mennta- og barnamálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga.
  • Innleiðing laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
  • Teymisvinna þvert á deildir og stofnanir sveitarfélagsins.
  • Starfsmaður fræðsluráðs.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Framhaldsnám í stjórnun eða menntunarfræðum.
  • Farsæl reynsla af grunnskólakennslu, stjórnun og mannaforráðum.
  • Haldbær reynsla af áætlunargerð og greiningum.
  • Þekking og reynsla í opinberri stjórnsýslu er æskileg.
  • Leiðtogahæfni og góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.

Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2022.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starf deildarstjóra fræðsluþjónustu.

Umsjón með starfinu hefur Guðrún Björg Sigurðardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, netfang gudrun@sudurnesjabaer.is eða í síma 425-3000.

Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is