Fara í efni

Breytingar á þjónustuaðilum úrgangs á Suðurnesjum

Breytingar á þjónustuaðilum úrgangs á Suðurnesjum

Árið 2023 markaði miklar breytingar í meðhöndlun úrgangs á Íslandi með innleiðingu á lögum nr.55/2003. Þessar breytingar hafa það meðal annars í för með sér að nú ber íbúum að flokka í fjóra flokka við húsvegg ásamt því að fara með aðra flokka á grenndar- og gámastöðvar.

Terra umhverfisþjónusta hefur frá árinu 2018 séð um hirðu úrgangs frá heimilum á Suðurnesjum og var sá samningur framlengdur um eitt ár á meðan breytingar þessar stóðu yfir. Í haust var þjónustan svo boðin út þegar Kalka auglýsti eftir tilboðum í hirðu úrgangs frá heimilum í öllum sveitarfélögunum á Suðurnesjum.

Niðurstöður útboðsins urðu þær samið var við tvo aðila og skiptist það með eftirfarandi hætti:

  • Hirða á matarleifum og blönduðum úrgangi frá heimilum í sveitarfélögum á Suðurnesjum verður áfram í höndum Terra umhverfisþjónustu og verður hirðing á tveggja vikna fresti.
  • Hirða á pappír / pappa og plastumbúðum frá heimilum í sveitarfélögum á Suðurnesjum verður í höndum Íslenska gámafélagsins og verður hirðing á fjögurra vikna fresti.

Samningarnir við báða aðila eru gerðir til sex ára með möguleika á framlengingu um eitt ár í senn, tvisvar sinnum, og taka þeir gildi frá og með 1.febrúar 2024.

Vinna við gerð dagatala þar sem íbúar sjá hvenær hirt er við þeirra heimili er nú í fullum gangi og verður birt á heimasíðu Kölku við fyrsta tækifæri.

Einnig er unnið að gerð dagatals sem sýnir losunardaga grenndarstöðva í sveitarfélögunum sem verður einnig gert aðgengilegt þegar það er tilbúið.

Kalka bindir miklar vonir við aukinn árangur í flokkun á svæðinu og hlakkar til samstarfsins við Íslenska Gámafélagið og Terra umhverfisþjónustu en ekki síður við íbúana á svæðinu.