Alþingiskosningar laugardaginn 25. september 2021
Kjörskrá og kjörstaðir í Suðurnesjabæ.
Kjörskrá í Suðurnesjabæ vegna Alþingiskosninga sem fram fara þann 25. september 2021, liggur frammi almenningi til sýnis í ráðhúsunum í Garði og Sandgerði frá 15. september og fram að kjördegi.
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar.
Kjörfundur fyrir kjósendur skráða í póstnúmerum 250 og 251 Garður er í Gerðaskóla.
Kjörfundur fyrir kjósendur skráða í póstnúmerum 245 og 246 Sandgerði er í Sandgerðisskóla.
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstaðir opna kl. 09:00 og loka kl. 22:00.
Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Sandgerðisskóla sími 893 3730
Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar