Fara í efni

Almenn ánægja í Suðurnesjabæ

Almenn ánægja í Suðurnesjabæ

Suðurnesjabær tók þátt í annað sinn sem eitt af 20 stærstu sveitarfélögum landsins í könnun á vegum Gallup sem fram fór í lok árs 2020. Niðurstöður sýna að íbúar eru enn almennt ánægðir með þjónustuna í Suðurnesjabæ og sveitarfélagið sem stað til að búa á þegar niðurstöður eru bornar saman við niðurstöður ársins 2019. Suðurnesjabær er m.a. í efsta sæti þar sem metið er hversu vel starfsfólk sveitarfélagsins leysir úr erindum. Niðurstöður könnunarinnar eru mjög gagnlegar og munu nýtast í áframhaldandi vinnu við að bæta þjónustu sveitarfélagsins enn frekar.