Vorferð eldri borgara í Suðurnesjabæ
Félagsstarf eldri borgara í Suðurnesjabæ fór í sína árlegu vorferð þann 8. júní síðastliðinn, þessi ferð er einn af hápunktum starfsársins. Dagskrá dagsins var bæði fræðandi, áhugaverð og skemmtileg og ferðin tókst einstaklega vel.
Fyrsti viðkomustaður dagsins var Byggðasafnið á Garðskaga þar sem Hjalti Örn Ólason tók á móti hópnum og sagði frá bók sinni og sýningunni Ástarsaga í vitunum. Erindið var afar fróðlegt og vakti mikinn áhuga meðal ferðafélaga.
Að heimsókninni lokinni var haldið til Grindavíkur þar sem snæddur var góður hádegisverður á veitingastaðnum Papas. Eftir hádegisverð hitti Kristín María Birgisdóttir hópinn og fór yfir atburðarás náttúruhamfaranna í Grindavík með myndum og glærum. Að því loknu leiddi hún hópinn í skoðunarferð um bæinn þar sem þátttakendur fengu einstaka innsýn í áhrif hamfaranna á samfélagið. Heimsóknin var áhrifamikil, fræðandi og lét engan ósnortinn.
Á heimleiðinni var komið við í Grindavíkurkirkju þar sem sr. Sigurður Grétar, sem var með í ferðinni, sagði frá sögu kirkjunnar og spilaði fallega á orgelið fyrir hópinn. Það var notalegur og eftirminnilegur endapunktur á vel heppnuðum degi.
Ferðin endaði með akstri um Reykjanesið áður en haldið var heim.

Starfsfólk félagsstarfs eldri borgara í Suðurnesjabæ þakkar öllum sem tóku þátt í ferðinni fyrir einstaklega ánægjulegan dag. Einnig eru færðar kærar þakkir til þeirra sem tóku á móti hópnum á viðkomustöðum dagsins og rútubílstjórans fyrir öruggan og skemmtilegan akstur.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest í starfinu á ný þegar haustið gengur í garð.