Fara í efni

Vinnuskólinn sumarið 2026

Vinnuskólinn sumarið 2026

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vinnuskólann fyrir sumarið 2026.

Vinnuskólinn er fyrir 14-16 ára ungmenni og má finna helstu upplýsingar um vinnuskólann á heimasíðu Suðurnesjabæjar.

Til að sækja um er farið í gegnum Völu vinnuskóla. Notast þarf við rafræn skilríki eða Íslykil. Athygli er vakin á því að ekki er hægt að klára umsókn án þess að hafa reikningsnúmer umsækjanda.

Umsóknarfrestur fyrir sumarið 2026 er til 31. maí.

Vinnuskólinn hefst 8. júní.