Fara í efni

Vinnuskólinn sumarið 2025

Vinnuskólinn sumarið 2025

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vinnuskólann fyrir sumarið 2025.

Vinnuskólinn er fyrir 14-16 ára ungmenni og má finna helstu upplýsingar um vinnuskólann á heimasíðu Suðurnesjabæjar.

Til að sækja um er farið í gegnum Völu vinnuskóla. Notast þarf við rafræn skilríki eða Íslykil. Athygli er vakin á því að ekki er hægt að klára umsókn án þess að hafa reikningsnúmer umsækjanda.

Umsóknarfrestur fyrir sumarið 2025 er til 31. maí.

Vinnuskólinn hefst 10. júní.