Fara í efni

Vinnuskólinn og sumarstörf 17 ára+ í Suðurnesjabæ

Vinnuskólinn og sumarstörf 17 ára+ í Suðurnesjabæ

Ungmenni í Suðurnesjabæ hófu störf í vinnuskólanum í liðinni viku og hafa bæjarbúar líklega orðið varir við ungmenni í gulum vestum að róta í beðum eða slá opin svæði.

Í Vinnuskólanum í ár eru rúmlega 120 nemendur á aldrinum 14-16 ára. Mörg þeirra eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og er vinnuskólinn oft fyrsta launaða starfið þeirra. Þess má geta að ungmennum í Suðurnesjabæ stendur til boða að vinna að meðaltali fleiri tíma í vinnuskólanum á hærri launum en ungmenni í nágranna sveitarfélögunum okkar.

Ungmenni vinnuskólans eru að læra á vinnumarkaðinn en um leið að fegra bæinn okkar. Lögð er áhersla á að vel takist til og að upplifunin af vinnu sé jákvæð og uppbyggileg. Flestir nemendur vinnuskólans sinna umhirðu á opnum svæðum en hafa ber í huga að vinnuskólinn er skóli þar sem nemendur fá fræðslu um ýmislegt sem tengist hinum almenna vinnumarkaði, vinnutengdum málefnum o.fl. Á meðan á vinnuskólanum stendur verður boðið upp á forvarnarfræðslu frá jafningjafræðslu Hins hússins en ásamt því verður boðið upp á örfyrirlestra um málefni sem tengjast ungu fólki í dag.

Til viðbótar er Suðurnesjabær að bjóða upp á sumarstörf fyrir ungmenni á aldrinum 17+ en þau hófu störf 21. maí sl. og vinna þau mest við sláttur og önnur garðyrkjustörf. Samtals eru það hátt í 30 störf ásamt störfum um 16 flokkstjóra. 

Það er mikið um að vera í Suðurnesjabæ þessa dagana!