Viltu taka þátt í að móta stefnu um samgöngur?
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu samgöngumála á Suðurnesjum
mánudaginn 22. mars kl. 13:00–15:00. Á fundinum verður fjallað um samgöngumál
í landshlutanum, helstu áskoranir og tækifæri og valkosti til framfara.
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum.
Fundurinn er öllum opinn en gestir eru beðnir um að skrá þátttöku
á skráningarsíðu fundarins. Allir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn.
Fundurinn er hluti af fundaröð um allt land í tilefni af undirbúningi grænbókar
um stöðu samgöngumála. Sjá nánar á vef um grænbók um samgöngumál
Dagskrá
13:00–14:00
Erindi
Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs Reykjanesbæjar, og
Halldór K. Hermannsson, hafnarstjóri Reykjanesbæjar
Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags-og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar, og
Sigurður A. Kristmundsson, hafnarstjóri Grindavíkur
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
14:00–15:00
Umræður
Fundargestum er skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni.
Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar.
Fundarstjóri er Gissur Jónsson, varaformaður samgönguráðs
Hægt er að skrá sig á fundinn hér