Fara í efni

Við fögnum fjölbreytileikanum

Við fögnum fjölbreytileikanum

Þessa dagana hefðu Hinsegin dagarnir verið haldnir hátíðlegir með hinum ýmsu viðburðum en sökum hertra sóttvarnarreglna er dögunum fagnað með breyttu sniði.

Að venju flöggum við í Suðurnesjabæ í tilefni daganna, fögnum fjölbreytileikanum og minnum okkur á að allar manneskjur eiga rétt á að njóta sömu mannréttinda án tillits til uppruna þeirra, þjóðernis, litarháttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, kynferðis, kynhneigðar, aldurs, efnahags, ætternis, fötlunar, heilsufars eða annarrar ómálefnalegrar stöðu.

Við hvetjum íbúa Suðurnesjabæjar til þess að tileinka sér áfram umburðalindi og að sýna samfélagslega ábyrgð – þannig gerum við samfélagið okkar enn sterkara!

Nú erum við einnig að setja upp „Takk“ vegg í Sandgerði. Takk veggurinn er staðsettur við Sandgerðisvita og hvetjum við íbúa til þess að taka af sér myndir og merkja þær með @tilfyrirmyndar, @tilfyrirmyndar og @sudurnesjabaer 

 Fögnum fjölbreytileikanum og takk fyrir vera til fyrirmyndar !

 

Takk veggir í Suðurnesjabæ
  • Við Auðarstofu í Garði
  • Við Sandgerðisvita í Sandgerði