Vetrarmalbikun á Stafnesvegi í Sandgerði – Sumarverk í janúar
Í dag, 29. janúar er unnið að malbikun á Stafnesvegi í Sandgerði þar sem verið er að leggja lokahönd á lagfæringu á vegkaflanum að afleggjaranum inn í Skerjahverfi. Framkvæmdin er lokaskref í heildstæðu verki þar sem ný frá- og vatnsveita var lögð samhliða endurbótum á veginum.
Aðstæður til verksins eru óvenjulegar miðað við árstíma. Um 5 stiga hiti og hagstætt veður gera það mögulegt að vinna hefðbundið sumarverk á miðjum vetri. Slík tækifæri eru nýtt þegar þau gefast, enda mikilvægt að ljúka framkvæmdum með fullnægjandi frágangi þegar aðstæður leyfa.
Verkið er mikilvægt fyrir svæðið, bætir bæði aðgengi og ásýnd og er liður í áframhaldandi uppbyggingu og viðhaldi gatna í Sandgerði. Það er jafnframt gott dæmi um hvernig innviðaframkvæmdir, sem oft fara hljóðlega fram á meðan þær standa yfir, verða loks sýnilegar þegar síðasta lagið er lagt.