Fara í efni

Verksamningur um byggingu Gerðaskóla undirritaður

Verksamningur um byggingu Gerðaskóla undirritaður
 
Suðurnesjabær undirritaði nýlega verksamning við Braga Guðmundsson ehf um stækkun Gerðaskóla að undangengnu opnu útboði þar sem sex aðilar skiluðu inn tilboði.  Alls nemur samningsupphæðin 222.599.000 kr. eða 85,5% af kostnaðaráætlun og er fyrirhugað að framkvæmdum við þennan áfanga verksins ljúki fyrir upphaf næsta skólaárs.  Framkvæmdir eru þegar hafnar.