Vel heppnuð barnamenningarhátíð í Suðurnesjabæ – Skelin
Vel heppnuð barnamenningarhátíð í Suðurnesjabæ – Skelin
24. apríl 2026
Barnamenningarhátíðin Skelin fór fram í Suðurnesjabæ dagana 13.–19. apríl við afar góðar undirtektir. Þátttaka var með besta móti og greinilegt að hátíðin hefur fest sig í sessi sem mikilvægur og skemmtilegur viðburður í samfélaginu.
Fjölbreytt dagskrá stóð börnum og fjölskyldum til boða alla vikuna, þar sem sköpunargleði, leikur og listir fengu að njóta sín. Þema hátíðarinnar í ár, Skeljaskrímslið, vakti mikla lukku og setti skemmtilegan svip á viðburðina.
Skipuleggjendur hátíðarinnar þakka öllum þeim sem héldu utan um viðburði og þeim sem tóku þátt með einum eða öðrum hætti.