Vantar þig sumarvinnu?
Vantar þig sumarvinnu?
07. apríl 2022
Fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar óskar eftir einstakling til að sinna stuðning við börn með sérþarfir á námskeiðum ásamt öðrum verkefnum innan félagsþjónustu.
HÆFNISKRÖFUR
- Hafa náð 20 ára aldri
- Góðir samskiptahæfileikar
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á að vinna með börnum og fjölskyldum
- Hreint sakavottorð
Starfstímabilið er 1. júní til 15. ágúst og vinnutíminn er frá kl. 8:00 til 16:00. Starfið byggir á gagnkvæmu trausti og vinsemd.
Nánari upplýsingar um starfið og umsóknir berist til Sóleyjar Gunnarsdóttur, þroskaþjálfa soley@sudurnesjabaer.is eða í síma 425-3000.