Fara í efni

Ungt fólk í Suðurnesjabæ 2022

Ungt fólk í Suðurnesjabæ 2022

Hagir og líðan ungmenna í Suðurnesjabæ 2022

Kynning á niðurstöðum verður þann 1. júní kl. 15:00 á zoom, hvetjum foreldra og alla áhugasama til að fylgjast með.

Link á fundinn má finna hér 

Þar mun sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu fara yfir helstu niðurstöður rannsóknar um hagi og líðan nemenda í 8.-10. bekk í Suðurnesjabæ. Rannsóknin er landskönnun sem ungmenni taka þátt í ár hvert. Niðurstöður gefa ákveðna mynd af lífstíl, líðan og viðhorfi Markmiðið er að skoða sem flesta félagslega þætti í lífi ungs fólks og gefa niðurstöður ákveðna mynd af lífstíl, líðan, viðhorfi og vímuefnaneyslu ungmenna í hverju sveitarfélagi. Vímuefnaneysla ungmenna á Íslandi er með því lægsta sem gerist í hinum vestræna heimi. Áskoranir tengdar nýjum vörum og varningi og tíðarandanum snúa í dag helst að notkun orkudrykkja og nikótínpúða, almennri líðan og ónægum svefni. Könnun ársins var framkvæmd í febrúar/mars.

Nokkur dæmi um verndandi þætti sem hafa jákvæð áhrif á líðan barna:

  1. Samvera foreldra og barna
  2. Nægur svefn
  3. Foreldrar sýni umhyggju og setji skýr mörk
  4. Foreldrar þekki vini barna sinna og foreldra vinanna
  5. Þátttaka barna í skipulögðu frístundastarfi
  6. Virða útivistartíma og barnaverndarlög
  7. Skýr afstaða gegn neyslu áfengis, vímuefna, tóbaks, nikótínpúða og rafretta
  8. Samstarf, traust og þátttaka í foreldrastarfi, t.d. foreldraráðum og foreldrarölti

Mikilvægt er að allir rói í sömu átt, þekki áskoranirnar og taki þátt í samtali og forvörnum þannig að sem bestur og mestur árangur náist.

Rannsóknir mikilvægt innlegg í öflugt forvarnarstarf 

Forvarnarstarf meðal ungmenna hefur verið mjög öflugt á Íslandi undanfarin ár og er hið svokallaða „Íslenska forvarnarmódel“ nú notað sem fyrirmynd forvarnarstarfs víðsvegar um heiminn. Rannsóknir og greining hefur kappkostað að hámarka nýtingu niðurstaðna með því að greina staðbundnar niðurstöður fyrir sveitarfélög, hverfi, skóla og aðra hagsmunaaðila ár hvert. Markmið og tilgangur er að færa niðurstöðurnar til þeirra sem vinna með íslenskum ungmennum og vinna að því að bæta líf þeirra og umhverfi. Rík áhersla er lögð á að kortleggja og meta þá þætti sem skipta máli í lífi ungmenna hverju sinni og fylgjast með breytingum í samfélaginu. Hver og einn grunnskóli fær til að mynda niðurstöður fyrir sinn skóla sem nýttar eru endurmat, áherslubreytingar og skipulagningu á skóla- og frístundastarfi.