Fara í efni

Ungmennaráð Suðurnesjabæjar fundaði með bæjarstjórn

Ungmennaráð Suðurnesjabæjar fundaði með bæjarstjórn

Ungmennaráð Suðurnesjabæjar átti sinn fyrsta fund með bæjarstjórn Suðurnesjabæjar í upphafi 39. fundar bæjarstjórnar sem fram fór miðvikudaginn 3. nóvember. Á fundinum fóru tveir fulltrúar ungmennaráðs yfir málefni sem ráðið hafði undirbúið til kynningar og eru ungu fólki í Suðurnesjabæ hugleikin og afhentu bæjarstjórn gögn til frekari skoðunar.

Á fundinum lýsti bæjarstjórn ánægju sinni með framtak ungmennaráðs og hvatti þau til áframhaldandi góðra verka, en ungmennaráð hafði undirbúið sig vel fyrir fundinn sem gerir bæjarfulltrúum auðveldara fyrir að vega og meta það sem lagt var fram.

Þá bókaði bæjarstjórn eftirfarandi á fundinum:

„Bæjarstjórn þakkar fulltrúum í ungmennaráði fyrir þátttöku í fundi bæjarstjórnar. Jafnframt þakkar bæjarstjórn fyrir framlag ungmennaráðs til fundarins og fyrir þau áherslumál sem kynnt voru. Bæjarstjórn leggur áherslu á mikilvægi ungmennaráðs er það varðar að koma á framfæri við bæjarstjórn þeim áherslumálum sem brenna á ungum íbúum Suðurnesjabæjar. Bæjarstjórn óskar ungmennaráði alls góðs í þeirra störfum.“

Fulltrúar ungmennaráðs sem sátu fundinn voru Ernir Ólason, Eyþór Ingi Einarsson, Salóme Kristín Róbertsdóttir, Lilja Guðrún Vilmundardóttir, Irma Rún Blöndal, Heba Lind Guðmundsdóttir og Sara Mist Atladóttir.