Undirritun samninga við íþróttafélög
Undirritun samninga við íþróttafélög
28. febrúar 2022
Á dögunum undirrituðu fulltrúar Suðurnesjabæjar samstarfssamninga við Golfklúbb Sandgerðis, Knattspyrnufélagið Reyni og Knattspyrnufélagið Víði. Fulltrúar félaganna mættu í Ráðhúsið í Garði og gengu frá samningum með Magnúsi Stefánssyni, bæjarstjóra sem færði félögunum þakkir og óskaði þeim góðs gengis í þeirra störfum.
Á myndinni eru fulltrúar félaganna ásamt Magnúsi Stefánssyni, bæjarstjóra og Rut Sigurðardóttur, deildarstjóra frístundamála hjá Suðurnesjabæ.