Umsóknir í frístundaheimili grunnskóla Suðurnesjabæjar fyrir skólaárið 2025–2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í frístundaheimili grunnskóla Suðurnesjabæjar fyrir nemendur í 1. – 4. bekk skólaárið 2025–2026. Markmið frístundaheimilanna er að hvert barn fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.
Sótt er um rafrænt í gegnum Vala. Þar er að finna hlekk á umsóknarkerfið Vala frístund.
Vala frístund er sjálfsafgreiðslukerfi þar sem hægt er að:
- sækja um vistun í frístundaheimili
- óska eftir breytingum á dvöl
- skrá frístundaakstur
- segja upp vistun
Eftir að umsókn hefur verið afgreidd berst boð um vistun í tölvupósti. Foreldrar þurfa að samþykkja boðið til að tryggja pláss barnsins.
Við hvetjum foreldra til að sækja um sem allra fyrst. Skráning í frístundaakstur hefst í ágúst. Nánari upplýsingar verða sendar til foreldra þegar skráning hefst.
Gjaldskrá frístundaheimila
- Frístundaheimili (með síðdegishressingu): 16.920 kr. á mánuði
- Frístundaheimili (með síðdegishressingu) hálf vistun: 10.770 kr. á mánuði
Gjöld eru innheimt fyrirfram.
Gjalddagi: Fyrsti hvers mánaðar
Eindagi: 21 degi síðar