Umsókn um styrk til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks
Umsókn um styrk til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks
12. september 2025
Opið er fyrir umsóknir um styrk til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks. Umsókn og fylgigögn skal skila fyrir 30.október 2025.
Samkvæmt 25. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 er heimilt að veita fötluðu fólki styrki eða fyrirgreiðslu vegna félagslegrar hæfingar og endurhæfingar sem hér segir:
- Styrk til verkfæra- og tækjakaupa eða aðra fyrirgreiðslu vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi að endurhæfingu lokinni.
- Styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga.