Fara í efni

UMHVERFISDAGAR SUÐURNESJABÆJAR 14. – 15. maí 2021

UMHVERFISDAGAR SUÐURNESJABÆJAR 14. – 15. maí 2021

Í tilefni umhverfisdaga blæs Suðurnesjabær til átaks í sveitarfélaginu þar sem íbúar eru hvattir til að snyrta vel til í sínu nánast umhverfi. Áhersla er lögð á hreinsun utandyra þar sem lóðir eru hreinsaðar, stéttar sópaðar, hús snyrt og nærumhverfið lagfært.

Íbúum er heimilt er að losa rusl í gáma á lóðum áhaldahúsanna án endurgjalds að Gerðavegi 11 og Strandgötu 13 á eftirfarandi tímum:

  • Föstudaginn 14. maí kl. 13-17
  • Laugardaginn 15. maí kl. 10-16

Starfsmenn sveitarfélagsins verða á staðnum. Það flýtir mikið að koma með ruslið vel flokkað samkvæmt eftirfarandi:

  • Timbur
  • Járnaúrgang
  • Annan brennanlegan úrgang

Afklippur og gróðurúrgang skal flokka og skila á merkt svæði ofan við Háteig í Garði og Byggðaveg í Sandgerði.

ATH

  • Plast og annar ólífrænn úrgangur skal settur í sérstakt sorphirðuker á losunarsvæði garðaúrgangs.
  • Ókeypis ruslapokar fást í áhaldahúsinu fyrir alla þá sem vilja taka til hendinni utan lóða sinna.
  • Áhersla umhverfisdaganna er umhverfishreinsun þar sem markmiðið er að hreinsa bæjarfélagið og koma rusli á víðavangi til förgunar.

Umhverfisdeildin vill minna á að lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðum innan lóðarmarka og íbúar eru hvattir til að huga að því sérstaklega við götur og gangstíga og klippa gróðurinn og stuðla þannig að auknu öryggi vegfarenda.

Einnig eru lóðareigendur hvattir til að snyrta og viðhalda gróðrinum á lóðum sínum og stuðla þannig að vist- og hlýlegra nærumhverfi. Eins eru íbúar bæjarfélagsins sérlega hvattir til að hreinsa til á lóðunum sínum m.a. hreinsa rusl, viðhalda grasi, klippa tré, hreinsa arfa úr beðum o.s.frv.

 Endurvinnslustöð Kölku býður heimilum á Suðurnesjum að farga ýmsum úrgangsefnum án endurgjalds allt árið um kring

  • Blandaður heimilisúrgangur (ca. 2-3 ruslapokar á dag)
  • Málmar, allar tegundir
  • Hjólbarðar
  • Bylgjupappi, blöð, tímarit o.fl
  • Raftæki af öllum gerðum
  • Rafgeymar og rafhlöður

Hvetjum við íbúa til að nýta sér þessa þjónustu