Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðskaga
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum þann 4. maí 2022 að auglýsa og kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðskaga samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr 123/2010, samhliða aðalskipulagsauglýsingu.
Núverandi deiliskipulagssvæði er vestast á Garðskaga og býr að nálægð við hafið, vitana tvo og byggðasafnið ásamt gamla vitavarðarhúsinu. Tillaga að deiliskipulagi gerir ráð fyrir að svæðið sé stækkað og komið fyrir nýrri aðstöðu sunnan Skagabrautar, þar sem m.a. verði heilsulind með baðlóni og veitingastað og möguleiki fyrir tjaldsvæði. Þessi aðstaða samnýtist svæði norðan Skagabrautar, þar sem byggingarreitur fyrir byggðasafnið er stækkaður ásamt skilgreiningu aksturs og gönguleiða og möguleika á frekari nýtingu svæðisins til útivistar og fræðslu.
Tillagan er aðgengileg í fylgiskjölum á vef Suðurnesjabæjar sudurnesjabaer.is frá og með 9. nóvember 2022 til 23. desember 2022. Einnig er hægt að nálgast tillöguna á skrifstofu Suðurnesjabæjar að Sunnubraut 4 í Suðurnesjabæ.
Athugasemdum skal skilað á afgreidsla@sudurnesjabaer.is undir yfirskriftinni „Deiliskipulag Garðskaga - Auglýsing“ fyrir 23. desember 2022. Athugasemdir má einnig senda í bréfi á skrifstofu sveitarfélagsins Sunnubraut 4, 250 Suðurnesjabæ.
- Deiliskipulag Garðskaga; Greinargerð og skilmálar – Tillaga
- Deiliskipulag Garðskaga; Deililskipulagsuppdráttur – Tillaga
Jón Ben Einarsson
Skipulagsfulltrúi Suðurnesjabæjar