Fara í efni

Tilkynning frá Kölku - Breytingar á úrgangshirðu næstu daga

Tilkynning frá Kölku - Breytingar á úrgangshirðu næstu daga

Almannavarnir hafa óskað eftir því að tunnur við heimili í Grindavík verði tæmdar föstudaginn 16. febrúar. Að sjálfsögðu viljum við leggja okkar af mörkum til þess að létta undir með nágrönnum okkar í Grindavík og hefur Kalka fengið Íslenska Gámafélagið og Terra með sér í lið til þess að ráðast í þetta verkefni.

Vegna þessa verður seinkun á þeim heimilum sem átti að tæma í dag föstudag, en þjónustuaðilar stefna að því að vinna á laugardaginn og vinna seinkunina upp eins fljótt og auðið er.

Um leið og við biðjumst velvirðingar á þessari seinkun vonum við að íbúar sýni þessu skilning.