Fara í efni

Þrjú fyrirmyndarverkefni í Suðurnesjabæ hlutu viðurkenningu

Þrjú fyrirmyndarverkefni í Suðurnesjabæ hlutu viðurkenningu

Alls bárust 20 tilnefningar þar sem 17 verkefni voru tilnefnd til Fyrirmyndarverkefnis Suðurnesjabæjar 2025. Dómnefnd sem skipuð var þeim Andreu Önnu Guðjónsdóttur, Eiríki Stephensen og Sigríði Heiðu Bragadóttur, valdi svo þrjú verkefni sem fengu viðurkenningu við hátíðlega athöfn á Byggðasafninu á Garðskaga á 7 ára afmæli sveitarfélagsins.

Markmið með viðurkenningu er að vekja athygli á því gróskumikla starfi sem fer fram í leik-, grunn- og tónlistarskólum, frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum í sveitarfélaginu og veita starfsfólki hvatningu til frekari nýbreytni og þróunar í starfi með börnum og ungmennum.

Verkefnin þrjú sem fengu viðurkenningu voru:

  • Útikennsla – Elmar Torsten Sverrisson og Sigurlaug Björk Jensdóttir, Gefnarborg. Í umsögn dómnefndar segir: „Verkefnið nýtir náttúrulegt umhverfi á skapandi hátt og tengir fræðslu við hreyfingu, úthald og náttúruupplifun. Það hefur mikið fræðslugildi og eykur virkni. Verkefnið hefur augljós tengsl við lýðheilsu, sjálfbærni og reynslunám. Sterk tenging við námsumhverfi í aðalnámskrá leikskóla um náttúru sem býður upp á fjölbreyttan efnivið og margvísleg tækifæri til rannsókna og uppgötvana. Frábær nýting á náttúruauðlindum í skólastarfi. Fyrirmynd að reynslumiðuðu námi.”
  • Betri bær – Guðrún Ósk Gunnlaugsdóttir og Sunna Björk Svavarsdóttir, Sandgerðisskóla. Í umsögn dómnefndar segir: „Mótar borgaravitund og tengir nám við samfélagið á áhrifaríkan hátt. Kennslan er gagnvirk og uppbyggileg. Tengist lýðræði og samfélagsþátttöku í aðalnámskrá. Getur verið fyrirmynd að borgaramenntun í grunnskólum.”
  • Skynörvunarherbergi – Thelma Rúnarsdóttir, Sandgerðisskóla. Í umsögn dómnefndar segir: „Frábær nýsköpun og handverk í þágu nemenda með sérþarfir. Rýmið er bæði faglegt og persónulegt. Tengist einstaklingsmiðaðri kennslu og vellíðan nemenda. Mikil fagmennska og umhyggja að baki.”

Suðurnesjabær þakkar öllum sem gáfu sér tíma til að tilnefna Fyrirmyndarverkefni og vekja þannig athygli á fyrirmyndar skóla og frístundastarfi, öllum þeim sem tilnefndir voru, dómnefnd fyrir faglegt og krefjandi starf og síðast en ekki síst þeim sem hlutu viðurkenningar að þessu sinni.