Fara í efni

Þjóðaratkvæðagreiðsla laugardaginn 29. ágúst 2026

Þjóðaratkvæðagreiðsla laugardaginn 29. ágúst 2026

Kjörskrá og kjörstaðir í Suðurnesjabæ

Kjörskrá í Suðurnesjabæ vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar verður aðgengileg til skoðunar í ráðhúsunum í Garði og Sandgerði frá 8. ágúst og fram að kjördegi.

Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár.

Kjörstaðir:

Kjörstaðir verða opnir frá 09:00 - 22:00 á kjördag, þann 29. ágúst 2026.

  • Kjósendur með lögheimili í póstnúmerum 245 og 246 í Sandgerði kjósa í leikskólanum Grænuborg.
  • Kjósendur með lögheimili í póstnúmerum 250 og 251 í Garði kjósa í Gerðaskóla.

Einnig er bent á skra.is þar sem hægt er að finna sinn kjörstað.

Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í leikskólanum Grænuborg. Sími: 899-6317.

Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.


Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar