Þakkir við lok Vitadaga-hátíð milli vita
Bæjarhátíð Suðurnesjabæjar, Vitadagar–Hátíð milli vita 2026, er nú lokið eftir viðburðaríka og skemmtilega viku. Hátíðin fór fram dagana 24.–30. ágúst og tókst einstaklega vel, með fjölbreyttri dagskrá, frábæru veðri og góðri þátttöku íbúa og gesta.
Mikið var um að vera alla hátíðardagana og lögð var áhersla á að allir gætu fundið eitthvað við sitt hæfi. Það var einstaklega ánægjulegt að sjá hversu vel bæjarbúar og gestir tóku þátt í hátíðinni og fylltu bæinn af lífi og góðri stemningu.
Að baki Vitadögum stendur stór hópur fólks sem hefur lagt ótal stundir í undirbúning, skipulag og framkvæmd. Félagasamtök, sjálfboðaliðar, starfsfólk, listamenn, fyrirtæki og fjölmargir aðrir lögðu sitt af mörkum til að gera hátíðina sem glæsilegasta.
Suðurnesjabær færir öllum sem tóku þátt í Vitadögum innilegar þakkir. Sérstakar þakkir færum við styrktaraðilum og fyrirtækjum fyrir mikilvægan stuðning, skipuleggjendum og sjálfboðaliðum fyrir ómetanlegt starf og listamönnum og öllum þeim sem komu fram eða lögðu sitt af mörkum. Án stuðnings styrktaraðila og góðrar þátttöku bæjarbúa væri ekki hægt að halda svona hátíð á jafn glæsilegan hátt.
Við kveðjum Vitadaga 2026 með gleði og þakklæti og hlökkum strax til þess að taka á móti ykkur aftur á Vitadögum – Hátíð milli vita að ári.
Ábendingar og hugmyndir má senda á vitadagar@sudurnesjabaer.is
Myndir og fleiri upplýsingar um hátíðina má nálgast á Facebook síðu Vitadaga.


