Fara í efni

Þakkir og kveðjur við starfslok

Þakkir og kveðjur við starfslok

Nú á dögunum bauð bæjarstjórn til móttöku til heiðurs starfsfólki sem hefur látið af störfum vegna aldurs, eftir langan starfsferil hjá Suðurnesjabæ, áður Sveitarfélaginu Garði og Sandgerðisbæ.

Að þessu sinni var um að ræða níu starfsmenn sem höfðu starfað hjá sveitarfélaginu um áraraðir.  Bæjarstjórn þakkaði þeim ánægjulegt samstarf ásamt því að þakka þeim fyrir störf í þágu samfélagsins. Að þessu sinni voru eingöngu um að ræða konur og voru þeim færðar gjafir ásamt blómvöndum. Gjafirnar voru listaverk eftir Gyrðir Elíasson, sem hafa skískotun til eldgosanna sem hafa ítrekað komið upp á Reykjanesi að undanförnu.

Eftirtöldum var þakkað fyrir áralangt starf hjá sveitarfélaginu:

  • Anna Marta Valtýsdóttir stjórnsýslu-og fjármálasviði, áður hjá Sandgerðisbæ.
  • Elísabet Guðrún Þórarinsdóttir stjórnsýslu-og fjármálasviði, áður hjá Sandgerðisbæ.
  • Eygló Antonsdóttir stjórnsýslu-og fjármálasviði, áður hjá Sandgerðisbæ.
  • Jenný Kamilla Harðardóttir stjórnsýslu-og fjármálasviði, áður hjá Sveitarfélaginu Garði.
  • Ester Grétarsdóttir Sandgerðisskóla,
  • Sveinbjörg Eydís Eiríksdóttir Sandgerðisskóla.
  • Jóna Karen Pétursdóttir Gerðaskóla.
  • Guðbjörg Guðmundsdóttir Gerðaskóla.
  • Guðlaug Friðriksdóttir Íþróttamiðstöðinni Sandgerði.

Suðurnesjabær óskar þessum góðu konum alls hins besta í framtíðinni.