Suðurnesjabær þakkar Blue Car Rental fyrir veglega styrki
Suðurnesjabær þakkar Blue Car Rental fyrir veglega styrki
30. október 2026
Suðurnesjabær vill koma á framfæri innilegu þakklæti til Blue Car Rental fyrir veglega styrki til þriggja mikilvægra verkefna innan bæjarfélagsins. Styrkirnir eru hluti af glæsilegu góðgerðarframtaki Blue Car Rental, þar sem 39 milljónir króna söfnuðust til stuðnings góðgerðarmálum og samfélagsverkefnum á Suðurnesjum. Með styrkjunum er verið að styðja við verkefni sem hafa það að markmiði að bæta aðstöðu, efla þjónustu og skapa jákvæð áhrif í nærumhverfinu.
Eftirfarandi verkefni í Suðurnesjabæ hljóta styrki:
-
Sandgerðisskóli – Drekagarður og Friðgarður, sérúrræði.
-
Gerðaskóli – Sérúrræði.
-
Heiðarholt.
Suðurnesjabær þakkar Blue Car Rental kærlega fyrir rausnarlegan stuðning og mikilvægt framlag til samfélagsins.
Myndir/Víkurfréttir.