Suðurnesjabær óskar eftir tilboðum
Suðurnesjabær óskar eftir tilboðum
03. september 2020
Suðurnesjabær óskar eftir tilboðum í verkið:
Suðurnesjabær
Stofnlagnir fráveitu að Skerjahverfi
Jarðvinna, yfirborðsfrágangur og lagnir
Verkið felst í fullnaðarfrágangi nýrrar stofnlagnar fráveitu frá Strandgötu að Skerjahverfi sem er nýtt hverfi sunnan við Sandgerðisveg.
Helstu verkþættir eru:
- Upprif á núverandi malbiksyfirborði yfir skurðstæði
- Losun klappar í lagnaskurði
- Uppgröftur lagnaskurðar
- Fullnaðarfrágangur nýrra brunna og lagnar í skurð auk tenginga
- Fylling og fullnaðarfrágangur yfir lögn og að brunnum
- Malbikun yfir skurðstæði
- Nýr kantsteinn á hlutasvæðum
Helstu magntölur eru:
- Upprif malbiks 1.000 m2
- Losun klappar 700 m3
- Uppgröftur og brottakstur 2.650 m3
- Aðflutt fylling 550 m3
- Fráveitulagnir, ø300mm 780 m
- Brunnar 13 stk
- Malbik 5cm 1.000 m2
- Staðsteyptur kantsteinn 15 cm 10 m
Verkinu skal að fullu lokið 15. desember 2020.
Hægt verður að nálgast útboðsgögnin á hjá VSÓ Ráðgjöf. Óskir um útboðsgögn sendist á netfangið, utbod@vso.is frá föstudeginum 4. september kl. 9 og verða þau þá send þeim sem þess óska.
Tilboð skulu hafa borist Bæjarskrifstofum Suðurnesjabæjar, Sunnubraut 4 Garði (afgreidsla@sudurnesjabaer.is) eigi síðar en miðvikudaginn 23. september 2020 kl. 11.00. Verða þau þá opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.