Fara í efni

Suðurnesjabær fagnar 7 ára afmæli með uppfærðri heimasíðu og nýrri þjónustugátt

Suðurnesjabær fagnar 7 ára afmæli með uppfærðri heimasíðu og nýrri þjónustugátt

Í dag, 10. júní, fagnar Suðurnesjabær sjö ára afmæli og í tilefni dagsins hefur heimasíða sveitarfélagsins fengið nýtt og nútímalegra útlit. Jafnframt hefur verið opnuð ný þjónustugátt sem markar stórt framfaraskref í rafrænni þjónustu við íbúa.

Í gegnum þjónustugáttina geta íbúar nú auðkennt sig með rafrænum skilríkjum og sótt um fjölbreytta þjónustu hjá sveitarfélaginu á einfaldan og öruggan hátt. Með þessu er stefnt að því að bæta aðgengi, stytta afgreiðslutíma og auka gagnsæi í þjónustu við íbúa.

„Þetta er liður í áframhaldandi þróun á stafrænum lausnum sveitarfélagsins. Við viljum einfalda samskipti íbúa og Suðurnesjabæjar, auka þjónustustigið og mæta breyttum væntingum til opinberrar þjónustu,“ segir Magnús Stefánsson bæjarstjóri. 

Við hvetjum íbúa til að kynna sér nýju þjónustugáttina á www.sudurnesjabaer.thjonustugatt.is og skoða þá þjónustu sem þar er í boði.

Til hamingju með daginn, Suðurnesjabær!

Hér má sjá nýtt útlit heimasíðunnar og hvar farið er inn á þjónustugáttina (merkt með hjarta).