Suðurnesjabær býður upp á akstur milli byggðakjarna laugardaginn 31. ágúst
Suðurnesjabær býður upp á akstur milli byggðakjarna laugardaginn 31. ágúst
30. ágúst 2024
Í tilefni Vitadaga – Hátíð milli vita ætlar Suðurnesjabær að bjóða íbúum upp á akstur á milli byggðakjarna laugardaginn 31. ágúst.
Akstursþjónustan stöðvar á eftirfarandi stöðum til þess að skila af sér og taka á móti farþegum:
- Strætóskýli við Garðbraut, á móts við Ráðhúsið í Garðinum
- Strætóskýli við Sandgerðisskóla
Akstur að degi til:
- Kl. 12:30 – 15:00 - Ferðir frá Garði
- Kl. 15:30-17:00 – Ferðir frá Sandgerði
Akstur að kvöldi til:
- Kl. 19:30-20:30 – Ferðir frá Garði
- Kl. 22:30-23:30 – Ferðir frá Sandgerði
Viðbúið er að einhver seinkunn kunni að vera sökum umferðar. Farþegar eru beðnir um að sýna þolinmæði og skilning gagnvart því.
Athugið: Þetta er ekki strætóvagn á vegum Strætó.