Fara í efni

Suðurnesin leiðandi í farsæld barna

Suðurnesin leiðandi í farsæld barna

Fyrsta farsældarráð á Íslandi stofnað - víðtæk samstaða um metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir börn og fjölskyldur!

Tímamót urðu í málefnum barna á Íslandi í dag, 23.júní þegar Farsældarráð Suðurnesja var formlega stofnað. Ráðið er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og var sett á laggirnar í kjölfar samþykktar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og samstarfssamnings við Mennta- og barnamálaráðuneytið. Með stofnun ráðsins hefst nýr kafli í þverfaglegu samstarfi ríkis, sveitarfélaga og félagasamtaka í landshlutanum.

Meginmarkmið Farsældarráðs Suðurnesja er að efla og samræma þjónustu við börn og fjölskyldur með samþættri, snemmtækri og heildstæðri nálgun. Þetta felur meðal annars í sér að styrkja samstarf, tryggja jöfn tækifæri barna til þátttöku, náms og félagslegrar virkni þvert á kerfi. Einnig er lögð áhersla á forvarnir og snemmtækan stuðning í virku samráði við börn og foreldra.

Stofnun ráðsins byggir á öflugum grunni samstarfs sem hefur þróast á Suðurnesjum undanfarin ár, meðal annars í gegnum verkefni á borð við Velferðarnet Suðurnesja, Höldum glugganum opnum og Öruggari Suðurnes. Slík verkefni hafa markað skýra stefnu í þágu snemmtæks stuðnings og lagt grunn að traustu samstarfi þvert á kerfi.

Samheldni og metnaður

Farsældarráð Suðurnesja er afrakstur markvissrar samvinnu undirbúningshóps með fulltrúum allra sveitarfélaga og lykilþjónustuveitenda sem starfa í þágu barna í landshlutanum. Hópurinn mótaði sameiginlega samstarfsyfirlýsingu og skipulag ráðsins, sem nú hefur verið formlega undirritað.

Að ráðinu standa: Reykjanesbær, Suðurnesjabær, Grindavíkurbær, Vogar, Framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur, Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilsugæslan Höfði, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Ungmennaráð Suðurnesja, Embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum og Sýslumanns á Suðurnesjum, auk Svæðisstöðvar íþróttahéraða.

„Stofnun Farsældarráðs Suðurnesja er sögulegt skref fyrir landshlutann okkar,“ segja bæjarstjórar sveitarfélaganna, Magnús Stefánsson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Guðrún P. Ólafsdóttir og Fannar Jónasson sameiginlega,. Við stöndum þétt saman, með öllum lykilaðilum í þjónustu við börn og fjölskyldur, til að tryggja þeim bestu mögulegu tækifærin í lífinu. Ráðið er skýrt merki um metnað og vilja til að tryggja að kerfin okkar virki fyrir þau sem þau eiga að grípa og styðja.“

Raddir barna fá vægi

Samkvæmt farsældarlögunum bera sveitarfélögin sameiginlega ábyrgð á starfsemi ráðsins. Þátttaka barna og ungmenna er lykilatriði í starfi þess og eiga ungmennaráð sveitarfélaga á Suðurnesjum fjóra fulltrúa í ráðinu.

Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að fá sæti við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar sem hafa áhrif á líf okkar,“ sögðu fulltrúar ungmennaráðs Suðurnesja við undirritunina.Farsældarráðið gefur okkur tækifæri til að láta raddir okkar heyrist og tryggja að þjónusta á Suðurnesjum sé í takt við raunverulegar þarfir okkar.“

Heilbrigðisþjónusta og vellíðan í forgrunni

Heilbrigðisþjónusta er grunnstoð farsældar barna. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, telur afar mikilvægt að HSS sé virkur hluti af samstarfinu: „Lýðheilsuvísar Embættis landlæknis gefa vísbendingar um heilsu og líðan barna og ungmenna. Þeir sýna að nauðsynlegt er að horfa til líkamlegrar, andlegrar og félagslegrar heilsu barna á Suðurnesjum. Í farvatninu er að styrkja heilsueflandi móttöku barna á HSS og styrkja skólahjúkrun enn frekar. Snemmtæk íhlutun er mikilvæg þegar horft er til heilsu og heilbrigði barna og ungmenna“ sagði hún við þetta hátíðlega tilefni.

Formaður Grindavíkurnefndarinnar Árni Þór Sigurðsson bætir við: „Velferð Grindvíkinga og farsæld barna ekki síst er brýnt viðfangsefni í kjölfar náttúruhamfara. Grindavíkurnefndin leggur í auknum mæli áherslu á velferð og sálfélagslegan stuðning og stofnun Farsældarráðs er mikilvægur liður í samþættingu þjónustu og gott tæki til að ná utan um börn og hlúa að þeim og fjölskyldum þeirra.“

Skipulag og næstu skref

Skipulag ráðsins byggir á fjórum einingum: Farsældarráðinu sjálfu, framkvæmdahópi, tímabundnum verkefnahópum og faghópi.

Framkvæmdahópurinn starfar í umboði ráðsins og hefur umsjón með innleiðingu ákvarðana, þar á meðal undirbúningi aðgerðaáætlunar. Verkefnahópar verða settir á fót eftir þörfum og faghópur sinnir faglegu mati og ráðgjöf. Verkefnastjóri farsældar, sem starfar í umboði Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, annast daglega framkvæmd og undirbúning funda.

Innan tólf mánaða frá stofnun ráðsins verður mótuð svæðisbundin fjögurra ára aðgerðaáætlun um farsæld barna, byggð á kortlagningu styrkleika og áskorana á svæðinu.

Leiðandi hlutverk og fordæmi fyrir landið

„Stofnun Farsældarráðs Suðurnesja markar tímamót í að efla þjónustu við börn og fjölskyldur á svæðinu og undirstrikar sterkan vilja sveitarfélaganna og þjónustuveitenda til að forgangsraða farsæld barna. Með þessu framtaki stíga Suðurnesin mikilvægt skref sem leiðandi afl í þróun nýrra lausna í þágu barna á landsvísu og móta fordæmi fyrir aðra landshluta“ sagði Hjördís Eva Þórðardóttir, verkefnastjóri farsældar barna á Suðurnesjunum við undirritunina.

Samkvæmt farsældarlögum er gert ráð fyrir að svæðisbundin farsældarráð verði stofnuð víðar um landið. Sú reynsla og þekking sem byggist upp á Suðurnesjum getur því orðið dýrmætur leiðarvísir fyrir önnur svæði.

Samstarfsyfirlýsingin tók gildi við undirritun í dag, 23. júní 2025.