Fara í efni

Stóri plokkdagurinn 30. apríl

Stóri plokkdagurinn 30. apríl

Sunnudaginn 30. apríl verður stóri plokkdagurinn haldinn hátíðlegur í sjötta sinn og mun Suðurnesjabær að sjálfsögðu taka þátt.

Við hvetjum íbúa, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök til að ganga um umhverfi sitt og tína upp plast, pappa og annað rusl sem til hefur fallið. Notum hugmyndaflugið og gerum tiltektina að skemmtilegu verkefni.

Hægt verður að nálgast plokk-poka í umhverfismiðstöðvum Suðurnesjabæjar fimmtudaginn 27. apríl frá kl. 9:00-10:00 og 14:00-15:00 og föstudaginn 28. apríl frá kl. 10:00-12:00.

Byggðakjörnunum tveimur hefur verið skipt upp í minni svæði og söfnunarstaðir merktir. Biðjum við fólk að nýta sér söfnunarstaðina og safna sem flestum pokum á sama stað.

Staðsetning söfnunarstaða og svæðaskipting

Fyrir þá sem vilja byrja fyrr þá verða starfsmenn sveitarfélagsins á ferðinni fimmtudag og föstudag að losa söfnunarstaðina. Tommi Knúts frá Bláa hernum verður síðan á ferðinni á sunnudeginum en hægt verður að hringja í hann í síma 897 6696 eða senda tölvupóst á tomas@blaiherinn.is til að tilkynna um staðsetningu poka, eins ef um stóra hluti er að ræða en hann mun sjá um að koma því í réttar hendur til förgunar.

Ef þú veist af svæði sem hreinsa þarf sérstaklega er tilvalið að láta vita í ábendingagátt sveitarfélagsins.

Af hverju að plokka

  • Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
  • Einstaklingsmiðað
  • Hver á sínum hraða
  • Hver ræður sínum tíma
  • Frábært fyrir umhverfið
  • Fegrar nærsamfélagið
  • Öðrum góð fyrirmynd

Munið svo að taka myndir og deila á samfélagsmiðla merkt #plokk #plokk2023 #suðurnesjabær