Fara í efni

Starfsemi og þjónusta Suðurnesjabæjar 15. febrúar 2024

Starfsemi og þjónusta Suðurnesjabæjar 15. febrúar 2024

Starfsemi og þjónusta Suðurnesjabæjar er að mestu orðin hefðbundin, þó með eftirtöldum undantekningum.

  • Sundlaugarnar í Sandgerði og Garði verða lokaðar næstu daga þar til fullur þrýstingur verður kominn á hitaveitukerfið og heimilt verður að hita laugar og potta á ný.
  •  Íþróttasalurinn í Íþróttamiðstöðinni í Garði verður lokaður.
  • Önnur starfsemi og þjónusta Suðurnesjabæjar er með hefðbundnu sniði.