Spilanámskeið fyrir börn og unglinga
Spilanámskeið fyrir börn og unglinga
29. júní 2021
Suðurnesjabær mun halda tvö spilanámskeið sem byrja í ágúst og eru ætluð fyrir börn og unglinga. Annars vegar er um að ræða Dungeons & Dragons námskeið fyrir unglinga á aldrinum 13-17 ára og hins vegar spilanámskeið fyrir börn á aldrinum 10-13 ára.
Námskeiðin fara fram í ráðhúsinu í Sandgerði, Vörðunni, Miðnestorgi 3. Nánari upplýsingar um hvort námskeið fyrir sig má finna með því að smella á námskeiðin hér fyrir neðan.
Skráning fer fram á afgreidsla@sudurnesjabaer.is eða í síma 425-3000.